Um Listasjóð Dungal

Sjóðurinn var stofnaður árið 1992 af Gunnari B. Dungal og Þórdísi Öldu Sigurðardóttur þáverandi eigendum Pennans hf.

Sjóðurinn var stofnaður til minningar um foreldra Gunnars, þau Margréti og Baldvin P. Dungal og hét upphaflega Listasjóður Pennans. Við sölu Pennans árið 2005 ákváðu Gunnar og Þórdís að halda áfram starfsemi sjóðsins og var nafninu breytt í Dungal listasjóður.

Sjóðnum er einkum ætlað að styrkja unga myndlistamenn sem eru að feta sín fyrstu skref á myndlistarbrautinni. Veittir eru peningastyrkir og keypt verk eftir styrkþega. Dungal listasjóður á safn verka eftir flesta styrkþega.

 

Fréttir

3.12.2012 : Breyttar áherslur

Árlega hafa Gunnar og Þórdís veitt ungum og upprennandi listamönnum styrki.
Alls hafa yfir 50 listamenn hlotið styrki úr Dungal listasjóði. Jafnframt hafa Gunnar og Þórdís keypt verk eftir þessa listamenn og eiga myndir eftir þá flesta. Þau hafa í hyggju að kaupa verk af þeim sem eftir eru og eignast þannig verk eftir alla styrkþega sjóðsins.

Dungal listasjóður hefur nú ákveðið að skipta um áherslur.

Lesa meira
 

20.1.2012 : Styrkveiting Dungal listasjóðs fyrir árið 2011

Styrk hlutu:
Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir
Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir

Lesa meira
 

11.11.2011 : Myndlistarmenn - umsóknir um styrki

Auglysing-i-A4-2011

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á PDF formi hér.

 

31.1.2011 : Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2010

Styrk hlutu:
Páll Haukur Björnsson
Kristín Rúnarsdóttir

Lesa meira
 

10.1.2011 : Styrkumsóknir fyrir árið 2010

Sjóðnum bárust um 30 umsóknir um styrk fyrir árið 2010. Dómnefnd er að störfum og mun tilkynna um styrkþega 27. janúar nk.
 

19.11.2010 : Myndlistarmenn - umsóknir um styrki

Listasjodur-Dungal-augl

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á PDF formi hér.



 

11.1.2010 : Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2009

Styrk hlutu:
Baldur Geir Bragason
Indíana Auðunsdóttir
Huginn Þór Arason

Lesa meira
 

19.1.2009 : Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2008

Styrk hlutu:
Bjarki Bragason
Sirra- Sigrún Sigurðardóttir
Ragnar Jónasson

Lesa meira

 

18.1.2008 : Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2007

Styrk hlutu:
Davíð Örn Halldórsson
Birta Guðjónsdóttir
Björk Viggósdóttir

Veittir hafa verið styrkir úr Listasjóði Dungal fyrir árið 2007.

Lesa meira
 

7.3.2007 : Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2006

Styrk hlutu:
Darri Lorenzen
Kristín Helga Káradóttir
Hye Joung Park

Dómnefnd bárust 39 áhugaverðar umsóknir og ljóst að ungum efnilegum listamönnun fjölgar ört. Þeir ungu listamenn sem hljóta styrk að þessu sinni eru að stíga sín fyrstu skref sem mótaðir listamenn. Þeir hafa nú þegar haldið sýningar og tekið þátt í margvíslegum uppákomum. Athygli vekur hvað bakgrunnur þeirra er fjölbreyttur en þeir eiga þó það sameiginlegt að list þeirra endurspeglar vel þær hræringar sem eiga sér stað meðal yngstu kynslóðar listamanna. Og er það er von dómnefndar að styrkirnir verði þeim hvatning til frekari dáða.

Lesa meira
 

17.11.2006 : Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2005

Styrk hlutu:
Þórunn Maggý Kristjánsdóttir
Jóhannes Atli Hinriksson
Harpa Árnadóttir

Veittir hafa verið styrkir úr Listasjóði Dungal fyrir árið 2005.

Lesa meira
 

7.1.2005 : Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2004

Styrk hlutu:
Helgi Þórsson
Sigurður Guðjónsson

Hinn 7. jan. s.l. fór fram afhending styrkja úr Listasjóði Pennans fyrir árið 2004 en sjóðurinn var stofnaður árið 1992 í minningu Baldvins Pálssonar Dungal kaupmanns í Pennanum og eiginkonu hans Margrétar. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styrkja unga og efnilega myndlistarmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref á listabrautinni.

Lesa meira