Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2004
Styrk hlutu:
Helgi Þórsson
Sigurður Guðjónsson
Hinn 7. jan. s.l. fór fram afhending styrkja úr Listasjóði Pennans fyrir árið 2004 en sjóðurinn var stofnaður árið 1992 í minningu Baldvins Pálssonar Dungal kaupmanns í Pennanum og eiginkonu hans Margrétar. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styrkja unga og efnilega myndlistarmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref á listabrautinni.
Alls eru styrkirnir 800 þúsund krónur.
500 þúsund króna styrk hlaut Helgi Þórsson
Helgi er fæddur í Reykjavík 1975. Hann stundaði nám í Hollandi og lauk nýverið Mastersnámi í myndlist frá Sandberg Institute í Amsterdam. Áður hafði hann lokið B.A. gráðu frá frjálsmiðla deildinni við Gerrit Rietveldt Academie í Amsterdam og stundað nám við Konunglega Conservatorium Den Haag í sonology.
Á síðasta ári tók Helgi þátt í átta samsýningum og hélt tvær einkasýningar m.a. í Galleri Van Gelder í Amsterdam.
Bakgrunnur Helga er tónlist. Hann er félagi í hljómsveitinni Stilluppsteypa sem vakið hefur töluverða athygli með tónlistargjörningum víða um heim.
Dómnefndin telur ljóst að Helgi muni láta að sér kveða í myndlistinni. Hann kemur til leiks fullur af áræði. Í myndlistinni skapar Helgi ævintýraheima. Litríkar innsetningar þar sem gálgahúmor ræður ríkjum og allt getur gerst.
300 þúsund króna styrk hlaut Sigurður Guðjónsson
Sigurður er fæddur í Reykjavík 1975. Hann stundaði nám við Billedskolen í Kaupmannahöfn 1998 til 1999. Sigurður útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands 2003. Veturinn 2003 til 2004 nam Sigurður við Akademie der Bildenden Künste í Vínarborg hjá austurríska listamanninum Franz Graf.
Á síðasta ári tók Sigurður þátt í samsýningum. Má þar nefna Berlin North í Hamburger Bahnhofsafninu í Berlín og Behind the Eyes í Bergen Kunsthall.
Nýverið lauk áhugaverðri einkasýningu Sigurðar í Gallerí Kling og Bang sem bar titilinn Hýsill. Í sýningarskrá með sýningunni ritar Þórhallur Magnússon: “Sigurður Guðjónsson á sér bakgrunn í tónlist, þar sem hann meðal annars spilaði í einni hörðustu og þéttustu dauðarokkhljómsveit í manna minnum, Cranium Med.
Sú gagnlega reynsla ómar augljóslega í verkum hans, þar sem orka og djúp alvara sameinast ásamt undarlegri kímnigáfu. Sigurður tekst í verkum sínum með áhrifamiklum hætti á við tvö hrá náttúruöfl, - þau sem búa í eðli mannsins og þau í náttúrunni sjálfri”.
Dómnefnd skipuðu Guðrún Einarsdóttir, myndlistarmaður, fulltrúi SÍM, Kristján Steingrímur Jónsson, deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, formaður, og Gunnar B. Dungal, forstjóri Pennans.
