Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2006

Styrk hlutu:
Darri Lorenzen
Kristín Helga Káradóttir
Hye Joung Park

Dómnefnd bárust 39 áhugaverðar umsóknir og ljóst að ungum efnilegum listamönnun fjölgar ört. Þeir ungu listamenn sem hljóta styrk að þessu sinni eru að stíga sín fyrstu skref sem mótaðir listamenn. Þeir hafa nú þegar haldið sýningar og tekið þátt í margvíslegum uppákomum. Athygli vekur hvað bakgrunnur þeirra er fjölbreyttur en þeir eiga þó það sameiginlegt að list þeirra endurspeglar vel þær hræringar sem eiga sér stað meðal yngstu kynslóðar listamanna. Og er það er von dómnefndar að styrkirnir verði þeim hvatning til frekari dáða.

Dómnefndin ákvað að veita Kristínu Helgu Káradóttur styrk að upphæð krónur 300 þúsund.


Kristín Helga er fædd í Reykjavík 1968. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2004. Áður hafði Kristín stundað nám við Verslunarskóla Íslands. Lokið námsbraut í hjúkrun við Háskóla Íslands og unnið við hjálparstörf á vegum Rauða Krossins i Gambíu. Í listalýðháskóla í Danmörku lagði Kristín stund á myndlist og leiklist. Í framhaldi á því stundaði hún fornám við Myndlistarskólann í Reykjavík og Fjölbrautaskólann í Reykjavík. Kristín Helga stefnir á framhaldsnám erlendis.


Frá því Kristín Helga lauk námi hefur hún verið afkastamikil og haldið sýninga hér á landi og erlendis. Hún vinnur í videó þar sem hún skrásetur eigin gjörninga. Verkin byggja á orðlausri leikrænni tjáningu hennar sjálfrar oft í sviðsettu rými. Þau eru á heimspekilegum nótum þar sem fjallað er um tilvistina og sálarlífið á einn eða annan hátt eða eins og hún segir sjálf ,, Þau fela í sér tilfinningar sem orð ná ekki yfir, enda eru tilfinningar okkar mikið nákvæmari en rökhugsunin sem við beitum þegar við tjáum okkur með orðum.  Verkin byggja því alfarið á skynjun hvers og eins og verða ekki fyllilega færð í orð´´


Jafnframt hefur dómnefnd ákveðið að veita Hye Joung Park styrk að upphæð krónur 300 þúsund.


Hye er fædd í Suður Kóreu 1976. Hún lauk B A námi í dýralækningum frá háskólanum í Seoul árið 2001. Árið 2002 stundaði hún nám við Myndlistarskólann í Reykjavík. Hye útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2005. Hún býr og starfar í London og Reykjavík.

Hye notar mjög gjarnan ljósmyndir og skúlptúra í verkum sínum. Með þessu móti myndgerir hún augnablik líðandi stundar. Eða eins og hún segir sjálf ,, Sú dýrmæta reynsla sem felst í því að vera öðruvísi á Íslandi gerir mig meðvitaða um breytingar á heiminum og um leið breytingar á sjálfsmynd minni. Ég freista þess að fanga þetta ástand sífelldra breytinga í verkum mínum og skapa þá tilfinningu fyrir hverfuleika sem ég upplifi sjálf.”


Peningastyrk kr. 500 þúsund hlýtur Darri Lorenzen.


Darri er fæddur í Reykjavík 1978. Hann stundar framhaldsnámi í myndlist við Kunsthochschule Weissensee í Berlín. Árið 2000 lauk Darri BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Í framhaldi stundaði hann nám í raftónlist við Tónlistarskólann í Kópavogi og myndlistarnám við Royal Academy of Art og Royal Conservatoire í Den Haag, sérgrein mynd og hljóð.


Verk Darra eru rýmistengd, þar sem skynjun áhorfandans á umhverfi sínu er aðalviðfangsefnið. Hann notar margskonar miðla í verkum sínum eins og hljóð, videó, gjörninga og ýmiskonar efni sem hann blandar saman í innsetningum. Hann segir: ,,Ég rannnsaka ferlið á milli aðstæðna sem ég set fram og viðbragða sýningargesta. Þar sem eitt leiðir að öðru, þjóna þessi ferli oft sem kveikjur að nýjum verkum. Sýningarrýmið skiptir mig miklu máli þegar ég vinn verk og gegnir það oft stóru hlutverki í verkinu sjálfu´´


Darri sýnir að hann er næmur listamaður. Hann er líka stórhuga og tekst á við listina af áræði og krafti. Hann er nú þegar kominn á fullt skrið og eru margar sýningar framundan.