Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2007
Styrk hlutu:
Davíð Örn Halldórsson
Birta Guðjónsdóttir
Björk Viggósdóttir
Veittir hafa verið styrkir úr Listasjóði Dungal fyrir árið 2007.
Dómnefndin ákvað að veita Björk Viggósdóttur styrk að upphæð krónur 300 þúsund.
Björk er fædd á Akureyri 1982, ólst upp í Hafnarfirði en hefur lengst búið í miðbæ Reykjavíkur. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2006. Þó Björk hafi nýlega lokið námi hefur hún þegar verið afkastamikil og haldið sýningar hér á landi og erlendis má þar nefna sýningu í Kling og Bang, lítil sýning hjá Gallerí I8 þátttaka í Sequenses hátíðinni. Gerð heimildarmyndar fyrir Reyjavíkurborg um Götuleikhúsið og gerð vidóverka fyrir Þjóðleikhúsið. Framundan eru sýningar í Listasafni Einars Jónssonar á vetrarhátíð, Aþenu í Grikklandi. ofl. stöðum . Hún hyggur á framhaldsnám í myndlist.
Björk vinnur í margskonar miðla. Með sérstæðum litum og formum nær hún að skapa persónulegan ævintýraheim þar sem takast á tilfinningar og rökhugsun eða eins og hún segir sjálf: ,,Ég reyni að gera myndlist sem gerir augu þín hungruð og hjarta þitt sorgmætt. Fylla huga sumra og gera aðra brjálaða. Ég elska að gera myndlist og mér þykir vænt um myndlist. Ég blanda saman prenti, ljósmyndun, skúlptúrum, tónlist, upptökum – videói kvikmyndun, dansi og allt sem lætur verkin mín tala til áhorfandans. Ég spila á bassa, hljómborð, hörpu, flautu melodicu og öll lítil hljóðfæri. Ég syng og dansa.”
Styrk að upphæð krónur 300 þúsund hlýtur Birta Guðjónsdóttir.
Birta er fædd í Reykjavík 1977. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Piet Zwart Institute í Rotterdam 2004. Áður hafði Birta útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Hún býr og starfar í Reykjavík. Næsta sýning Birtu opnar í Gallerí Turpentine í ágúst n.k.
Tímahugtakið er Birtu hugleikið. Hún sækir innblástur í bókmenntir, heimspeki og listasögu. Í þessu samhengi hefur hún sérstaklega kannað galdra, sjónhverfingar og líkamsskynjun þar sem speglun og endurtekning leikur stórt hutverk, svo og sjálfsmyndin/portrettið. Birta vinnur verk sín gjarnan í ljósmyndir. Hún segir: ,, Ég lít alls ekki á mig sem ljósmyndara og hafði í raun ekki áhuga á ljósmyndun fyrr en ég komst að því í ferlinu hversu kröfuhörð myndavélin er og hversu togstreitan á milli valds hennar og valds ljósmyndarans er mikil og margþætt; þú heldur að þú takir myndina en í rauninni tekur myndin þig.´´
Verk Birtu eru byggð á rannsóknum hennar á tímahugtakinu. Þau eru einföld með skýra sterka framsetningu þar sem rökhugsun kallast á við ljóðræna fagurfræði.
Peningastyrk kr. 500 þúsund hlýtur Davíð Örn Halldórsson
Davíð Örn er fæddur í Reykjavík 1976. Hann stundaði nám við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist frá myndlistardeild með BA gráðu 2002. Hann býr og starfar í Reykjavík.
Davíð er málari þó ekki í hefðbundnum skilningi. Hann sækir efni og aðferðir til borgarmenningar samtímans og notar ýmis óhefðbundin efni eins og túss, stensla, límbönd, iðnaðar- og spraylakk. Hann málar gjarnan á fundnar tréplötur og veggi. Myndefni hans minnir um margt á frumstæða list í bland við teiknimyndir, tölvuleiki og veggjakrot. Úr öllu þessu tekst honum að skapa persónulegan myndheim eða eins og listamaðurinn segir sjálfur: ,, málverkahefðin höfðar mjög sterkt til mín og þær frásagnaleiðir sem málverkið býður upp á. Ég hef unnið að því að þróa minn myndheim og í þeim þreifingum hef ég reynt að vera tilraunagjarn og djarfur. Ég nýti mér þá grafíkþekkingu og vinnubrögð sem ég lærði í skóla. Þar af leiðandi er nálgun mín á málverkið þess eðlis að þegar vinna við það hefur hafist er aðeins hægt að halda áfram en ekki hörfa´´
Davíð er stórhuga og tekst á við listina af áræði og krafti. Hann er þegar kominn á fullt skrið og er nú með sýningu á verkum sínum í gallerí Ágúst.
