Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2008

Styrk hlutu:
Bjarki Bragason
Sirra- Sigrún Sigurðardóttir
Ragnar Jónasson

Að þessu sinnni ákvað Dómnefndin að veita Ragnari Jónassyni styrk að upphæð krónur 300 þúsund.


Ragnar er fæddur í Reykjavík 1974. Hann útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands vorið 2004. Eftir nám sýndi Ragnar bæði hér heima og erlendis. Einnig skipulagði hann og vann að gerð sýninga síðast í Nýlistasafninu sumarið 2007. Undanfarin tvö ár hefur Ragnar stundað framhaldsnám við Glasgow School of art, hann útskrifaðist þaðan síðast liðið vor með meistaragráðu. Nýverið opnaði Ragnar stóra einkasýningu í The Studio Warehouses í Glasgow.


Ragnar er ekki málari í hefðbundnum skilningi. Nær er að segja að hann vinni með eiginleika málverks. Hann vinnur jöfnum höndum með tvívíð og þrívíð verk. Í tvívíðum verkum Ragnars er það liturinn sjálfur og málningin sem leikur aðalhlutverk frekar en tjáningin sem pensillinn býður upp á. Þannig mótar Ragnar frekar en að mála. Útkoman eru litskrúðug efniskennd verk oft án striga eða undirlags sem tengja sig beint við sýningarrýmið. Með sérstæðum litum og formum nær hann að skapa heim sem hefur skírskotun til litagleði popplistar sjöunda áratugarins. Hann segir sjálfur: ,,Í verkum mínum fæst ég oftast við sjálfsmyndir bæði sem málari og listamaður. Ég leitast við að finna táknmyndir þar sem samband listamannsins við efni og hina óáþreifanlegu þætti í listsköpun eru könnuð´´



Styrk að upphæð krónur 300 þúsund hlýtur Sirra, Sigrún Sigurðardóttir.


Sirra er fædd á Selfossi 1977. Hún útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og hélt áfram námi í listfræði við Háskóla Íslands 2003 til 2004. Undanfarin ár hefur Sirra verið mjög virk meðal yngstu kynslóðar íslenskra myndlistarmanna. Hún á nú þegar fjölda sýninga að baki bæði hér á landi og erlendis. Sirra er einn af stofnendum Kling og Bang og hefur með verkum sínum skipað sé í fremstu röð þeirra listamanna sem nú eru að marka spor fram á veginn.


Sirra skapar innsetningar þar sem hún tengir saman ólík efni eins og veggmálverk, spegla, gler, ljós, og videómyndir. Mörg verka hennar setja valda ljósgjafa og tvívíða hluti í þrívíða nálgun þar sem verkið sjálft, umhverfi þess og rými mynda eina heild. Hún sækir efnivið sinn meðal annars í tölulegar staðreyndir, vísindakenningar og rannsóknir. Með myndvörpum og speglum býr hún til hreyfingu í innsetningum sínum sem framkalla sjónhverfingu, einhverskonar aflvaka sem hrífur áhorfandann með sér á vit upplifunar. Úr öllu þessu tekst henni að skapa persónulegan myndheim eða eins og listamaðurinn segir sjálfur ,,í einhverja mánuði er ég búin að vera að skoða, bæði stjörnufræði, stærðfræði og eðlisfræði, sögu fræðihugtaka og hugmynda sem að við tökum sem sjálfsagðan hlut í dag, eða er hluti af okkar heimsýn. Ég skoða hvernig þessi hugtök eru tilkomin og hef ekki endilega reynt að skilja sjálfar stærðfræðiformúlurnar heldur frekar þessa hugsun á bak við þessa leit, að skilja heiminn. Hvernig það er gert og hvernig það er sett fram, þessi ferill´´



Peningastyrk kónur 500 þúsund hlýtur Bjarki Bragason.


Bjarki er fæddur í Reykjavík 1983. Hann stundaði nám við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist með BA gráðu í myndlist árið 2006. Áður stundaði Bjarki nám í tæniteiknun við Iðnskólann í Reykjavík og tók árið 2002 stúdentspróf við alþjóðaskólann Red Cross Nordic United World College í Noregi. Í haust hóf Bjarki meistaranám við Cal Arts í Los Angeles.


Á þeim stutta tíma sem leið frá því Bjarki útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands þar til hann hóf framhaldsnám í Bandaríkjunum tók hann þátt í fjölda sýninga á Íslandi og erlendis, nú síðast Listahátíð í sumar. Hann kenndi og hélt fyrirlestra við Listaháskóla Íslands, Listaháskólann í Bergen og í Vilníus. Árið 2005 bjó hann einnig og vann að myndlist í Berlín. Með náminu vinnur Bjarki að sýningarverkefnum bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hann hyggur á vinnustofudvöl í Kaliforníu og Finnlandi á næsta ári.


Í myndlist sinni skoðar Bjarki samhengi og tengsl ólíkra hluta. Hann segir ,, Ég skoða umhverfi mitt í gegnum myndlist, en að móta umhverfi innan þess er mikilvægara. Ég vinn í mörgum mismunandi miðlum, en bakgrunnur minn er í arkitektúr og teikningu. Í nýjustu verkum mínum og verkefnum sem eru í gangi í augnablikinu er ég að skoða þýðingu, tungumál og allt það sem misskilst og hvernig það öðlast sjálfsstætt rými”