Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2009

Styrk hlutu:
Baldur Geir Bragason
Indíana Auðunsdóttir
Huginn Þór Arason

Föstudaginn 8. janúar 2010 voru í átjánda sinn veittir styrkir úr Listasjóði Dungal. Jafnframt var tilkynnt að næsta bók sem Listasjóður Dungal mun standa að, í samstarfi við Kristján B. Jónasson bókaútgefanda hjá Crymogeu, er bók um verk Guðjóns Ketilssonar.

Alls bárust sjóðnum 35 umsóknir. Að mati dómnefndar hafa gæði umsókna sjaldan verið meiri. Veittir voru þrír styrkir og jafnframt mun sjóðurinn kaupa verk af styrkþegum.

Að þessu sinni hlutu þrír ungir listamenn styrk úr sjóðnum:

Styrk að upphæð kr. 500.000 hlaut Baldur Geir Bragason

Baldur Geir útskrifaðist árið 2001 með BA gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands og stundaði nám við Kunsthochschule Berlin á árunum 2005 til 2008. Baldur hefur haldið fjölda sýninga og tekið þátt í margskonar listverkefnum bæði hér á landi og erlendis. Fyrir um ári hélt Baldur eftirminnilega einkasýningu í Kling og Bang í Reykjavík sem bar yfirskriftina Yfirborðskennd. Þar sýndi hann verk sem eiga sér kunnulegar fyrirmyndir en endurspegla þegar að er gáð margræðan myndheim listamannsins. Verk hans eru í senn skúlptúrar og málverk af hverdagslegum hlutum sem eru ekki allir þar sem þeir eru séðir. Í myndlist sinni skoðar Baldur samhengi og tengsl ólíkra hluta og tekst með ótvíræðum hæfileikum sínum að skapa áhugaverðan og persónulegan myndheim að mati dómnefndar.


Styrk að upphæð kr. 300.000 hlaut Indíana Auðunsdóttir

Indíana útskrifaðist með BA gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2004 og Meistaragráðu í myndlist frá Slade School of Art árið 2008. Frá því að námi lauk hefur hún starfað og sýnt erlendis, m.a. í Kanada, Portúgal og Hollandi. Í list sinni vinnur Indíana með dægurmenningu og klisju ímyndir sem hún tengir á áhugaverðan hátt við form og minni hámenningar með videóverkum og skúlptúrum. Verk Indíönu eru sterk, hlaðin húmor með alvarlegum undirtóni þar sem samtímamenning er greind með framsæknum og frumlegum hætti.  Indíana mun dvelja í gestavinnustofum og halda sýningar erlendis á þessu ári.


Styrk að upphæð kr. 300.000 hlaut Huginn Þór Arason

Huginn Þór útskrifaðist með BA gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2002 og með Meistaragráðu á árinu 2007 frá Akademie der Bildenden Künste í Vínarborg. Huginn Þór hefur verið mjög virkur meðal yngstu kynslóðar íslenskra myndlistarmanna. Auk vinnu að eigin listsköpun hefur hann starfað að framgangi myndlistar m.a. setið í stjórn Nýlistasafnsins og verið sýningarstjóri. Hann hefur nú þegar vakið athygli og skipað sér í fremstu röð yngri listamanna. Í list sinni vinnur Huginn Þór með sjálfsmyndir og hlutverk. Hann notar fjölbreytta miðla þar sem hann sjálfur er oft hluti af myndefninu. Verk hans eru því sjálfsmyndir sem kanna mörk þess sértæka og almenna í lífi listamannsins.