Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2010
Styrk hlutu:
Páll Haukur Björnsson
Kristín Rúnarsdóttir
Fimmtudaginn 27. janúar 2011 voru í nítjánda sinn veittir styrkir úr Listasjóði Dungal. Veittir voru tveir styrkir og jafnframt mun sjóðurinn kaupa verk af styrkþegum. Styrkþegar eiga það sameiginlegt að vera að stíga sín fyrstu skref sem listamenn og er það von dómnefndar að styrkurinn verði þeim hvatning. Alls bárust sjóðnum 27 umsóknir.
Páll Haukur Björnsson:
Páll Haukur Björnsson er fæddur í Reykjavík 1981. Hann útskrifaðist með BA gráðu í myndlist vorið 2008 frá Listaháskóla Íslands og hóf í framhaldi nám í heimspeki við Háskóla Íslands. Páll er mjög virkur meðal yngstu kynslóðar myndlistarmanna. Hann hefur haldið fjölda sýninga bæði hér á landi og erlendis. Nefna má sýningar í Gerðasafni, Kjarvalsstöðum, Nýlistasafninu, Listasal Mosfellsbæjar, 700 Hreindýralandi (videohátíð) og Sequences listahátíð. Páll tók þátt í 6 mánaða gjörningi Ragnars Kjartanssonar The end sem fluttur var fyrir Íslands hönd á Feneyjartvíæringnum 2009. Páll opnar sýningu í Listasafni ASÍ í febrúar. Auk listsköpunar vinnur Páll að ýmsum verkefnum á sviði myndlistar. Hann situr í stjórn Nýlistasafnsins og er stjórnandi næstu Sequences listahátíðar sem haldin verður í vor.
Myndlist Páls einkennist af innsetningum og gjörningum. Hann dvelur gjarnan sjálfur í rými sem hann hefur byggt úr fjölbreyttu efni og hlutum, teikningum, ljósmyndum og video. Verk hans eru tilraunakenndir heimar sem hann sjálfur dvelur í við framandi aðstæður. Gjörningarnir endast oft klukkutímunum saman og minna einna helst á flóknar höggmyndir. Verk Páls eru óræð þar sem mörgum hugmyndum er teflt saman sem ýtir undir að áhorfandinn móti verkið sjálfur í sínum huga um leið og það verður til. Páll vinnur á áleitinn og um leið áhugaverðan hátt með möguleika gjörningalistarinnar.
Kristín Rúnarsdóttir:
Kristín Rúnarsdóttir er fædd í Keflavík 1984. Hún útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2009. Hún hefur undanfarin ár tekið þátt í margvíslegum verkefnum hér heima og á Norðurlöndunum. Á síðasta ári tók Kristín þátt í fjölmörgum sýningum og listverkefnum auk þess að vera ein af aðstandendum Gallerí Crymo, listamannareknu sýningarými í Reykjavík. Kristín tekur þátt í samsýningu í Listasafni Reykjanesbæjar í vor og hyggst hefja meistaramám í myndlist erlendis næsta vetur.
Kristín leggur áherslu á teikningu sem hún vinnur á pappír, plötur og í bækur. Auk þess vinnur hún beint á gólf og veggi með límbönd og krítar. Í mörgum verka hennar má finna vísanir í myndheim íþrótta og leikja. Teikningin er þannig notuð til að tjá hugleiðingar listamannsins um tengsl fagurfræði og hagnýti sem birtist okkur í umhverfi íþrótta og leikja. Kristín vinnur nú að því að þróa enn frekar myndmál sitt. Hún notar hvers kyns útskýringamyndir fyrir rými og kerfi. Þannig formgerir hún með efnum og litum hagnýtar teikningar og setur á áhugaverðan hátt í samhengi myndlistar.
