Styrkveiting Dungal listasjóðs fyrir árið 2011
Styrk hlutu:
Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir
Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir
Fimmtudaginn 19. janúar 2012 voru í tuttugasta sinn veittir styrkir úr Dungal listasjóði. Veittir voru tveir styrkir og jafnframt mun sjóðurinn kaupa verk af styrkþegum. Þessar ungu myndlistarkonur hafa nú þegar vakið athygli fyrir framsækin verk og er það von dómnefndar að styrkurinn verði þeim frekari hvatning. Alls bárust sjóðnum 36 umsóknir.
Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir:
Katrín Inga er fædd í Reykjavík1982. Hún útskrifaðist með B.A. gráðu frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2008 og lýkur í vor námi frá Háskóla Íslands með B.A. gráðu í listfræði með ritlist sem aukafag. Katrín er virk meðal yngstu kynslóðar myndlistarmanna. Á nýliðnu ári hélt hún sýningar í Gallerí Klósett, Gallerí Crymo og Gallerí Töflu. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga og margskonar listviðburðum hér á landi og erlendis frá árinu 2008. Katrín stofnaði ásamt nokkrum listfræðinemendum Artíma Gallerí. Hún situr í stjórn Sequences, er einn þátttakandi í Northen Video Art Network og er formaður félags listfræðinema við HÍ. Hún vinnur nú að stórri einkasýningu í Nýlistarsafninu ásamt ýmsum öðrum verkefnum.
Myndlist Katrínar einkennist af athöfnum, gjörningum og innsetningum þar sem hún veltir upp áleitum spurningum um listina, eðli hennar og tilgangi í samfélaginu. Hún bendir okkur á að samtímalist getur oft verið þróaðri en við sjálf og því ber að varast að vera of dómharður gagnvart henni. Með því að játast listinni og hafa við hana náin samskipti geti maður haft áhrif og breytt samfélaginu til betri vegar.
Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir:
Jóhanna Kristbjörg, fædd í Reykjavík 1982. Hún lauk B.A námi frá Listaháskóla Íslands árið 2008. Frá útskrift hefur Jóhanna starfað að myndlist og haldið tvær einkasýningar í Crymó Galleríi og Listasal Mosfellsbæjar auk samsýninga og þátttöku í listtengdum viðburðum. Þannig hefur Jóhanna tekið virkan þátt í myndlistarlífi yngri kynslóðar. Hún var meðlimur í Crymo Galleríi og á myndefni og texta í bókinni "Treystið okkur við erum myndlistarmenn" sem gefin var út um starfsemi gallerísins í samstarfi við bókaútgáfuna Crymogeu. Auk þess er Jóhanna meðstofnandi og stjórnandi Gallerí Klósetts ásamt því að vera stofnandi og ein af sjö listamönnunum hópsins Conclusion of Solution. Framundan er sýning Jóhönnu í Nýlistasafninu með listakonunni Myriam Bat Yosef.
Verk Jóhönnu eru iðulega málverkainnsetningar þar sem hún raðar saman málverkum á veggi í bland við aðra miðla eins og videó, skúlptúra og gjörninga. Hún vinnur með upplýsingar sem koma úr ólíkum áttum bæði frá samfélaginu og hennar nánasta umhverfi. Hún setur sig oft í ákveðið hlutverk og beitir tilfinningalegri nálgun á viðfangsefni sín sem hún þróar með rannsóknum í leit sinni að dýpri merkingu verka sinna.
Jóhanna skapar áhugaverðan myndheim ,,þar sem litaskalinn fyllir andrúmsloftið og nær fram styrk tjáningarinnar með samsetningum og krafti sínum” eins og hún orðar sjálf.
