Styrkveiting Listasjóðs Dungal fyrir árið 2005
Styrk hlutu:
Þórunn Maggý Kristjánsdóttir
Jóhannes Atli Hinriksson
Harpa Árnadóttir
Veittir hafa verið styrkir úr Listasjóði Dungal fyrir árið 2005.
Peningastyrk kr. 500 þúsund hlýtur Þórunn Maggy Kristjánsdóttir betur þekkt sem Dodda Maggy.
Hún er fædd í Keflavík 1981. Dodda Maggy útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2004. Hún stundaði tónlistarnám við Tónlistarskóla Grafarvogs og Tónskóla Sigursveins. Dodda Maggy hefur undanfarin ár sérhæft sig í videólist þar sem bakgrunnur hennar í tónlist hefur nýst henni vel. Hún hefur þrátt fyrir ungan aldur tekið þátt í fjölda sýninga víða um heim. Ný verið dvaldi Dodda Maggy í vinnustofu í Dale í Noregi. Sem stendur býr hún í Svíþjóð og hyggur á frekara nám. Dodda Maggy er fyrst og fremst vídeolistamaður. Hún vinnur oft með eigin líkama í verkum sínum sem fjalla um kvenlega kynhneigð og ímynd, tengsl hugar, líkama og sálar.
Dómnefndin telur ljóst að Dodda Maggy muni láta að sér kveða í myndlistinni. Hún kemur til leiks full af áræði.
Dómnefndin ákvað að veita Jóhannesi Atla Hinrikssyni styrk að upphæð krónur 300 þúsund.
Jóhannes er fæddur 1975 á Blönduósi en ólst upp á Sauðárkróki. Hann útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2000. Árið 2003 fór Jóhannes í framhaldsnám til New York og lauk námi frá School of visual arts árið 2005. Jóhannes hefur haldið einkasýningar og má þar nefna sýningar í Gallerí Hlemmi árið 2003 og Gallerí Kantor árið 2005. Hann hefur einnig tekið þátt í ýmsum sýningum til að mynda Grasrótin sýning yngstu kynslóðar myndlistarmanna í Nýlistasafninu. Á námstímanum í New York kynntust eigendur gallerísins Haswell ediger verkum Jóhannesar og buðu honum samning. Þess má geta að í janúar opnaði fyrsta sýning hann í galleríinu. Í listsköpun sinni blandar Jóhannes saman ólíkum efnum og miðlum. Hann gerir klippimyndir, videó, hreyfimyndir og skúlptúra. Í verkum hans má finna skírskotanir í daglegt líf og þá er fáránleikinn og húmorinn iðulega í forgrunni.
Honum tekst með áhrifaríkum hætti að sýna okkur mannlegt eðli með góðri slettu af brálæði og ömurleika eins og Jóhannes segir sjálfur um verk sín.
Jafnframt hefur dómnefnd ákveðið að veita Hörpu Árnadóttur styrk að upphæð krónur 300 þúsund.
Harpa er fædd í Bíldudal við Arnarfjörð 1965. Hún stundaði nám við Myndlista og handíðaskóla Íslands á árunum 1989 til 1993 og við Listaháskólann í Gautaborg frá 1994 til 1996. Eftir að námi lauk í Gautaborg bjó Harpa lengi vel í Svíþjóð en er flutt til Íslands og nú þegar farinn að láta að sér kveða í íslenskri myndlist. Á undaförnum árum hefur Harpa sýnt víða þó aðallega erlendis. Síðustu sýningar hennar hér á landi voru í Safni við Laugarveg og Safnasafni við Eyjafjörð árið 2004.
Harpa er málari þó ekki í hefðbundnum skilningi. Verk hennar eru lífræn og hafa skírskotun í náttúruna. Hún byggir verk sín á margskonar athugunum á efni og aðferðum. Formrænar endurtekningar koma skipulagi á lífrænt flæði þar sem litur og kyrrlátt yfirborðið nær að sefa áhorfandann. Í verkum sínum gerir Harpa framsæknar tilraunir með málverkið sem skapa henni sérstöðu.
