Starfsreglur stjórnar
Starfsreglur stjórnar
Minningarsjóðs Margrétar og Baldvins P. Dungal,
Dungal Listasjóður.
1. Þar til annað verður ákveðið verður ráðstöfunarfé sjóðsins veitt til myndlistar í víðtækasta skilningi.
2. Gert er ráð fyrir að B.Pálson ehf. leggi fram ákveðna fjárhæð á ári og hinn árlegi styrkur nemi sömu fjárhæð.
4. Sjóðsstjórnin mun stefna að því að kaupa verk efnilegra byrjenda.
5. Sjóðsstjórnin mun fyrir nóvember ár hvert auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknarfrestur verður til 19. desember. Sjóðsstjórnin er ekki bundin af umsóknum heldur getur hún valið listamann að eigin frumkvæði óháð umsóknum. Úthlutun fer fram í janúar næsta árs og stjórnin kunngerir úthlutunina á fundi með styrkþega og fulltrúum fjölmiðla.
Þannig samþykkt á stjórnarfundi 25. nóv. 2005.
